Tálgunarnámskeið - Skráning nauðsynleg

Vikuna 6.-10. júlí verður haldið skemmtilegt eins dags örnámskeið í tálgun á Árbæjarsafni með Bjarna Þór Kristjánssyni, smiði. Námskeiðið er frá kl. 13 - 16.
Þar læra krakkar réttu handbrögðin við að tálga með hníf, auk þess að læra að bora með gamaldags handbor. Í lok námskeiðsins er kveiktur lítill varðeldur og fá krakkarnir að grilla brauð á teini, ef veður leyfir. Vinsamlegast athugið að ætlast er til að krakkar yngri en 9 ára séu í fylgd með fullorðnum. Gjald er 3.100 kr. fyrir hvert barn og allt hráefni er innifalið í verðinu. Greitt er á staðnum. Kjósi fullorðnir að tálga með greiða þeir sama verð. Skráning er nauðsynleg og fer fram hér: https://outlook.office.com/book/vidburdir_borgarsogusafn@reykjavik.is/?ismsaljsauthenabled Vinsamlegast bókið aðeins eitt barn í einu og aðeins í einn dag, pláss eru takmörkuð. Hafið samband við vidburdir.borgarsogusafn@reykjavik.is til að komast á biðlista, bókist námskeiðið upp.