Tjarnargata 22 - Fræðslufundur Húsverndarstofu

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni, fimmtudaginn 26. Febrúar kl. 17-19, um lífið í gömlu húsi. Að þessu sinni mun Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík, deila reynslu sinni af lífinu í húsi sínu, verndun og viðhaldi þess, en húsinu er vel við haldið og það er enn mjög upprunalegt. Frítt inn og öll velkomin! --- Skráning fer fram hér: https://www.idan.is/vidburdir/1364/tjarnargata-22-fraedslufundur-husverndarstofu/ --- Húsið við Tjarnargötu 22 er eitt hinna glæsilegu timburhúsa í bárujárns-sveitserstíl sem standa við Tjörnina í Reykjavík. Húsið, sem var reist árið 1906 eftir uppdráttum Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts, stendur enn í sinni upprunalegu mynd þökk sé góðu og reglulegu viðhaldi. Húsið var reist fyrir Klemens Jónsson landritara, æðsta embættismann Stjórnarráðsins sem síðar varð bæði þingmaður og ráðherra. Húsið er enn í fjölskyldunni en núverandi eigandi þess er barnabarn Klemens, Bjarni Agnar Agnarsson. Á fundinum mun Bjarni Agnar fræða viðstadda um húsið sjálft, áhugaverða sögu þess auk þess að veita innsýn í lífið með gömlu friðlýstu húsi. Boðið verður upp á kaffi og te. Fundinum verður streymt fyrir þau sem ekki komast á staðinn. Húsverndarstofa er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Að henni standa Iðan fræðslusetur, Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.