Torf og grjót - Sýning á Barnamenningarhátíð

Nemendur í 3. bekk Ártúnsskóla komu á Árbæjarsafn í vor og hlustuðu á Sigrúnu Eldjárn, hinn ástsæla rithöfund og myndlistarkonu, lesa upp úr nýjustu bók sinni "Torf, grjót og burnirót". Eftir lesturinn fengu börnin svo að föndra sinn eigin torfbæ í anda bókarinnar. Hægt verður að sjá torfbæina í húsinu Líkn, við torg safnsins í tilefni af Barnamenningarhátíð sem er dagana 20. – 26. apríl. Öll velkomin. Þess má geta að bókin "Torf, grjót og burnirót" fæst í safnbúð safnsins.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði ókeypis.