VIÐEY FRIÐEY - sumar­nám­skeið fyrir 8-9 ára börn

VIÐEY FRIÐEY - sumarnámskeið fyrir 8-9 ára börn

Spennandi vikunámskeið fyrir 8-9 ára börn (fædd 2015 og 2016) í friðsælu náttúruperlunni Viðey þar sem sköpunargleðin verður virkjuð.

Hefur þú komið í gamla skólahúsið í Viðey? Hefur þú séð Friðarsúluna í Viðey? Á námskeiðinu nema börnin land, upplifa sögu og náttúru eyjarinnar í gegnum skapandi og listrænt starf innan- og utandyra. Þau fá að kynnast gamla skólahúsinu í Viðey sem var hluti af þorpinu sem hvarf. Í nýuppgerðu skólahúsinu er sérlega góð aðstaða til tilrauna og rannsókna á gersemum náttúru eyjunnar sem verða notaðar sem efniviður í myndlistarsköpun og leiki. Unnið verður sérstaklega með friðarupplifun í gegnum listir, leiki, markvissa útiveru og hreyfingu. Markmið námskeiðsins er að hver og einn þátttakandi fái að njóta sín á eigin forsendum undir handleiðslu fagfólks. Leitast verður við að skapa vingjarnlegt umhverfi fyrir börnin án snjalltækja, þar sem þau munu skapa nýjar minningar í hópi jafningja. Fjöldi barna er takmarkaður á námskeiðinu, að lágmarki 12 börn og að hámarki 15 börn. Tímasetning námskeiða: Námskeið 1: 10. – 14. júní Námskeið 2: 18. – 21. júní (4 dagar) Námskeið 3: 24. – 28. júní Kennarar námskeiðsins taka á móti börnunum við bryggjuna á Skarfabakka og ferjan siglir af stað stundvíslega kl. 09:00 á hverjum morgni. Þess vegna er gott að mæta allavega 15 mínútur fyrr, svo það gefist tími til að spjalla við kennara ef eitthvað er. Ferjan kemur til baka á Skarfabakka kl. 15:45. Praktísk atriði: Börnin þurfa að hafa með sér nesti fyrir daginn (hádegismat, morgun- og síðdegishressingu), skjólgóðan fatnað og góða skó. Gott er að hafa nesti og aukafatnað í bakpoka því það er um 20-30 mínútna gangur frá bryggjunni í Viðey og í skólahúsið þar sem námskeiðið fer að stórum hluta fram. Heimsókn í Viðey felur í sér töluverða útiveru og gott er að hafa í huga að hvassara getur verið í eynni en á landi. Göngustígar liggja um graslendi sem getur verið blautt og suma dagana verður farið í fjöru. Einnig er nauðsynlegt að börnin komi með inniskó þar sem gólf skólahússins er gróft. Síðasti frestur til að hætta við skráningu og fá reikning felldan niður er tveimur vikum fyrir upphafsdag námskeiðs. Verð: 40.000 kr. fyrir 5-daga námskeið 34.000 kr. fyrir 4-daga námskeið 20% afsláttur fyrir systkini Skráning á námskeiðin fer fram á sumar.vala.is. Þar er hægt að leita að námskeiðinu með því að skrifa “Viðey” í reit fyrir heiti námskeiðs. Kennarar: Þrír kennarar taka þátt í Viðey-Friðey í sumar. Misjafnt er hver kennir hverju sinni en kennarar eru: Ása Helga Ragnarsdóttir aðjúnkt í kennslufærði leiklistar og sérfræðingur í staðartengdri útimenntun, Björk Bjarnadóttir umhverfis-þjóðfræðingur sjá um kennslu á námskeiðunum og bætist Fríða Kristjánsdóttir kennari af myndlistarbraut við hópinn vikuna 18. - 21. júní. Um kennara námskeiðsins: Ása Helga Ragnarsdóttir er leikari að mennt og hefur verið með í Viðey-Friðey frá upphafi. Hún lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1996 og fór síðan í framhaldsnám til Bretlands og lauk þaðan meistaragráðu í listum með áherslu á leiklist í kennslu. Hún hefur síðan kennt við Menntavísindasvið Háskóla íslands. Sem leiklistarkennari hefur Ása lagt áherslu á að kenna kennaranemum að nota leiklist í námi barna. Hún hefur haft sköpun að leiðarljósi í sinni vinnu. Undanfarin sumur hefur Ása kennt á námskeiði um staðartengda útimenntun á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands þar sem nemendur upplifa náttúruna með öllum sínum skynfærum, vinna með sögur þeirra staða sem þeir fara á og tengja listir við upplifun sína. Ása var á árunum 1982-85 umsjónamaður Stundarinnar okkar í sjónvarpinu. Björk Bjarnadóttir, umhverfis-þjóðfræðingur, er með B.A próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og M.A í umhverfisfræðum frá sama skóla. Hluta af mastersnáminu tók hún í Kanada við Háskólann í Manitoba. Hún vinnur nú sem kennari og aðstoðarkokkur i Waldorfskólanum í Lækjarbotnum. Björk hefur verið með sagnastundir og leiðsagnir á Borgarsögusafni til fjölda ára. Draugagöngur og Jónsmessunæturgöngur á Árbæjarsafni, þjóðsögur við hafið sem og kúmengöngur í Viðey. Á Landnámssýningunni Aðalstræti hefur hún sagt frá rótum Hrekkjavökunnar en hún er hennar sérstaka gæluverkefni sem Björk stúderar í frístundum, mjög forn, áhugaverð hátíð sem dreifist æ hraðar um heiminn. Björk vann með frumbyggjum í óbyggðum Kanada á árunum 2005-2010. Var þar að læra um menningu, sögu og siði frumbyggja. Plöntur og fuglar eru einnig áhugamál Bjarkar sem og lífræn ræktun á tómötum og salati inni í Mosfellsdal. Fríða Kristjánsdóttir er kennari af myndlistarbraut og hefur 20 ára reynslu af kennslu, bæði í Danmörku og Íslandi. Hún kennir nú í Engjaskóla, hefur verið með útival í skólanum sínum og kennt mikið úti. Eins hefur hún unnið sem leiðsögumaður fyrir ferðafólk, mest í Reykjavík. Fríða hefur mikinn áhuga á náttúru og umhverfi, bæði til að lifa og vera í og til að auðga andann, til dæmis gegnum umhverfislist. Hún tók þátt í Viðey-Friðey 2022 og verður aftur með í sumar. Fríða er yfir sig hrifin af Viðey og hefur tekið námskeiðið Staðartengd útimenntun á Menntavísindasviði HÍ sem Ása kennir ásamt Jakob Frímanni Þorsteinssyni. Viðey-Friðey er samstarfsverkefni Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur og er byggt á grunni sem hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði.