Viðeyjarmótið í skák

Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 19. júlí. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka er ókeypis en greiða þarf í ferjuna sem leggur af stað frá Skarfabakka kl. 12:15. En athugið mótið hefst kl. 13.
Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik). Eftir 5. umferðir verður gert stutt hlé á taflmennsku. Teflt verður í hlýlegu umhverfi á efri hæð Viðeyjarstofu en þar má kaupa ljúffengar veitingar á meðan á móti stendur. Hámarks keppendafjöldi er 50. Vinsamlegast skráið ykkur á mótið sjá meðfylgjandi hlekk í viðburðinum. Við mælum með að þið bókið ferjumiða hjá www.elding.is um leið og þið skráið ykkur á mótið. Verðlaun á mótin eru: – 1. verðlaun: 15.000 kr. – 2. verðlaun: 10.000 kr. – 3. verðlaun: 5.000 kr. Gjald í ferjuna fram og til baka eru 2.500 kr. fyrir fullorðna og 1.250 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt (ath. aðeins er hægt að bóka 3 börn fyrir hvert foreldri / forráðamann). Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Aðgengi: Til að komast í ferjuna til Viðeyjar er gengið um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum og fyrir vikið er aðgengi fyrir hreyfihamlaða með miklum takmörkunum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í Viðey. Nánari upplýsingar um aðgengi má finna hér á vef Borgarsögusafns https://borgarsogusafn.is/adgengi Viðey er hluti af Borgarsögusafni Reykjavíkur - Eitt safn á fimm frábærum stöðum