Víkingafjör með Rimmugýg

Verið hjartanlega velkomin á Landnámssýninguna þann 9. maí kl. 13-16. Þá munu víkingar frá Rimmugýg bregða á leik í tilefni af 20 vetra afmæli sýningarinnar. Ókeypis inn og öll velkomin!
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).