Vísindaspjall á Menningarnótt- „Sendum inn vélmennin! Innsýn í rannsókn á ísilögðum fjörðum Grænlands“

Í tilefni af komu rannsóknarskipsins RRS Sir David Attenborough á Menningarnótt mun jöklafræðingurinn Dr. Oliver Marsh halda erindi um rannsóknir á Grænlandsjökli undir yfirskriftinni: „Sendum inn vélmennin! Innsýn í rannsókn á ísilögðum fjörðum Grænlands“. Erindið verður flutt á ensku 22. ágúst kl. 14:00–14:30. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Móttaka skipsins er unnin í samstarfi við Bresku heimskautarannsóknastofnunina (British Antarctic Survey) og Breska sendiráðið. Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott á Sjóminjasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.