Viðey
Sögueyjan

Viðeyjarkirkja og Viðeyjarstofa.
Viðey er einn helsti sögustaður landsins. Þar má finna fornleifar allt frá landnámi og þar eru tvö af elstu húsum landsins, Viðeyjarkirkja og Viðeyjarstofa.

Hópur fólks fyrir utan Viðeyjarstofu, um 1902. Ljósmyndari óþekktur
Plöntur og fuglar í Viðey






Viðburðir
Kvöldgöngur I Klaustur í Viðey í 800 ár
Verð velkomin í Viðey í kvöldgöngu fimmtudagskvöldið 20. ágúst kl. 20.00. Þá mun Margrét Hallgrímsdóttir leiða gesti í allan sannleika um fyrstu fornleifarannsókn á minjum miðaldaklausturs á Íslandi en hún stýrði einmitt fornleifarannsókn í Viðey á árunum 1987-1995. Siglt verður frá Skarfabakka í Viðey kl. 20:00 og til baka ekki seinna en kl. 23:00. Ókeypis er á viðburðinn, en greiða þarf í ferjuna. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram í ferjuna. https://elding.is/is/node/2373 Verið öll velkomin!

