Sjóminja­safn

Sögur af sjó og landi

Af sýningunni "Fiskur og fólk - sjósókn í 150 ár". Ljósmynd: Vigfús Birgisson, 2026.

Af sýningunni "Fiskur og fólk - sjósókn í 150 ár". Ljósmynd: Vigfús Birgisson, 2026.

Á Sjóminjasafninu í Reykjavík er boðið upp á grunnsýninguna „Fiskur og fólk – sjósókn í 150 ár“. Sýningin einkennist af lifandi stemningu sem eykur á djúpa upplifun gesta í gegnum ríkulegt myndefni og gagnvirkni. Auk þess eru á safninu tímabundnar sýningar í Vélasal og Bryggjusal ásamt varðskipinu Óðni og dráttarbátnum Magna, sem liggja bundnir við safnabryggjuna.

Svarthvít mynd tekin af starfsfólki frystihúss BÚR árið 1969.

Húsnæði Sjóminjasafnsins árið 1969 sem þá hýsti Bæjarútgerð Reykjavíkur (Búr). Konur við vinnu í fiskvinnslusal, Grandagarður 8. Ljósmyndari: Ásgeir Árnason

Sýningar

Viðburðir

Sjóminjasafnið í Reykjavík

Varðskipið Óðinn - Leiðsögn um borð

Verið velkomin í leiðsögn um borð í hinu sögufræga Varðskipi Óðni. Leiðsagnirnar fara fram á hverjum degi kl. 13, 14 og 15 frá 1. mars til 31. október. Í leiðsögninni eru þorskastríðin og björgunarsaga skipsins eru í brennidepli.

Varðskipið Óðinn - Leiðsögn um borð
Sjóminjasafnið í Reykjavík

Litasmiðja á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough

Í tilefni af heimsókn konunglega rannsóknarskipsins Sir David Attenborough á Menningarnótt, verður opin litasmiðja þann 22. ágúst kl. 10:00-20:00. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Litasmiðja á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough
Sjóminjasafnið í Reykjavík

Heimsókn frá konunglegu rannsóknarskipi á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough

Í tilefni af Menningarnótt, þann 22. ágúst kl. 10:00-20:00, standa Breska heimskautarannsóknastofnunin (British Antarctic Survey), Breska sendiráðið og Sjóminjasafnið í Reykjavík saman að móttöku konunglega rannsóknarskipsins RRS Sir David Attenborough til Íslands. Skipið kemur við í Reykjavík á leið sinni heim úr rannsóknarleiðangri þar sem bráðnun jökla á Grænlandi var skoðuð. Komið við á safninu og skoðið sérstaka pop-up sýningu þar sem hægt verður að fræðast um skipið, hitta áhöfnina og vísindamennina um borð og heyra hvers vegna rannsóknir á Grænlandi skipta okkur öll máli. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Heimsókn frá konunglegu rannsóknarskipi á Menningarnótt - RRS Sir David Attenborough
Sjóminjasafnið í Reykjavík

Frítt inn á Sjóminjasafnið í Reykjavík á Menningarnótt

Í tilefni af Menningarnótt verður ókeypis inn á Sjóminjasafnið í Reykjavík kl. 10-20 þann 22. ágúst.

Frítt inn á Sjóminjasafnið í Reykjavík á Menningarnótt
Sjóminjasafnið í Reykjavík

Vísindaspjall á Menningarnótt- „Jökulhetta Grænlands bráðnar hraðar en nokkru sinni fyrr - hvað þýðir það fyrir hafstrauma í Atlantshafi og veðurfar í Evrópu?“

Í tilefni af heimsókn konunglega rannsóknarskipsins Sir David Attenborough á Menningarnótt, stendur Alison Cook, nýdoktor í heimskautatengdri landupplýsingagreiningu (Polar Geospatial Analysis) við skosku hafrannsóknarstofnunina (Scottish Association for Marine Science) fyrir svokölluðu vísindaspjalli sem ber titilinn: „Jökulhetta Grænlands bráðnar hraðar en nokkru sinni fyrr - hvað þýðir það fyrir hafstrauma í Atlantshafi og veðurfar í Evrópu?“. Spjallið fer fram á ensku þann 22. ágúst kl. 14:00-14:30. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Vísindaspjall á Menningarnótt- „Jökulhetta Grænlands bráðnar hraðar en nokkru sinni fyrr - hvað þýðir það fyrir hafstrauma í Atlantshafi og veðurfar í Evrópu?“

Varð­skipið Óðinn

Varðskipið Óðinn. Ljósmynd: Vigfús Birgisson, 2026

Varðskipið Óðinn. Ljósmynd: Vigfús Birgisson, 2026

Boðið er upp á daglegar leiðsagnir út í varðskipið Óðinn á tímabilinu 1. mars til 31. október þar sem þorskastríðin og björgunarsaga skipsins eru í brennidepli.

Dráttarbáturinn Magni

Dráttarbáturinn Magni

Magni var fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi og gengdi hlutverki sínu fyrir Reykjavíkurhöfn með miklum sóma allt til ársins 1987.

Útleiga

Útleiga

Safn­verslun

Safnverslun Sjóminjasafnsins